100% hreint & lífrænt kakó frá Arhuaco ættbálknum í Kólumbíu
Kemur í grófu duftformi
Fairtrade
Tillögur að notkun: Seremóníukakó eða aðrir ljúfir drykkir, út á grautinn, í smoothie, heimagert súkkulaði, bakstur eða eldamennskuna
Kemur í niðurbrjótanlegum og endurunnum umbúðum
FRÁ ARHUACO ÆTTBÁLKNUM Kólumbíska kakóið kemur beint frá Arhuaco ættbálknum sem býr í Sierra Nevada í Kólumbíu. Þetta kakó vex lífrænt, á afar gömlu landi, og hefur gert í aldanna rás. Það hefur verið blessað með hreinum ásetningi og anda Arhuaco ættbálksins.
Kakóið vex við hlið annarra lækningajurta og tekur inn áhrif anda ættbálksins sem ræktar það.
Arhuaco trúa því að þeir geti deilt visku og kennslu forfeðra sinna í gegnum það sem þeir rækta, að þú, á meðan þú drekkur þetta kakó, getir fundið fyrir sögu þeirra, vitneskju og hugsunum.
FERLIÐ Kakóið vex, er uppskorið og unnið á vistvænan hátt eftir hefðum og venjum Arhuaco ættbálksins. Eftir að kakófræbelgirnir hafa verið uppskornir eru baunirnar gerjaðar. Síðan eru þær sólþurrkaðar og léttristaðar. Þar á eftir er hýðið tekið af baununum og þær steinmalaðar í deig. Engu er bætt við og ekkert fjarlægt sem er mjög mikilvægt þar sem það þýðir að náttúruleg fita er enn til staðar í kakóinu og það hjálpar líkamanum við upptöku þeirra fjölmörgu næringarefna sem finnast í kakóinu.
Þetta kakó er ræktað á landi þar sem ekki er mikil eldfjallavirkni og því hefur kakóið ekki háan stuðul þungamálma né kadmíum.
HJARTAOPNANDI Kakó hefur verið notað í seremóníur í margar aldir. Það er ekki aðeins þekkt fyrir að vera hjartaopnandi heldur einnig opna fyrir blóðflæði um allan líkamann. Kakóið getur hjálpað til við að finna meiri kærleika til sjálfs sín og tengingu við tilfinningar og hjartað og það sem þar býr.
- Þetta kakó kemur kemur kurlað þ.e.a.s. það er búið að skera það niður nokkuð fínt. Það bráðnar við hlýrra hitastig. Ef kakóið þitt kemur bráðið og hefur harðnað á ný (hugsanlega í heilan klump) og/eða með gráum/ljósari tón þá er engin ástæða til að hafa áhyggjur. Kakóið er ekki skemmt, það er enn heilagt og er notað eins og venjulega.
AÐ ÚTBÚA KAKÓ
Einfaldast er að blanda saman heitu vatni og kakó. Einnig má blanda út í kryddum, jurtum, hnetusmjöri, ofurfæðu og fleiru (lesa nánar hér)
15-25g kakó
100-200ml vatn
- Hitaðu vatn (ekki sjóða svo næringarefni og góðir eiginleikar haldist í kakóinu)
- Blandaðu kakói og vatni saman t.d. með skeið, freyðara eða í blandara
- Njóttu!